Farðu úr huga mínum!
24.08.2006 17:57:52 / Hrefna

Um mig...

Ég var að skoða um mig...dótið í aðalvalmyndinni sem ég skrifaði fyrir svolítið löngum tíma.....og þá áttaði ég mig á því hvað ég var mikið nörd fyrir ári, oooohh LORD! (sagt eins og gömul kona frá Oklahoma)

Eftir ár á ég eftir að lesa þetta blogg og átta mig á því að ég er mikið nörd, aðallega af því ég er að lesa árs gamla bloggfærslu..en hér kemur örlítil lýsingu á nútíma Hrefnu.

Það sem ég ætla að byrja á að segja er að sá eini sem ég hef nokkurn tímann elskað er Harry Potter og hann mun alltaf eiga sérstakann stað í hjarta mér...Ykkur finnst eflaust skrítið að ég sé svona gagntekin af manneskju sem er ekki einu sinni til þá er það eflaust rétt hjá ykkur. Þá hef ég komið því á framfæri.

Í stað þess að svara listanum í "Um mig" á ný ætla ég í staðinn að búa til minn eiginn, mun persónlulegra en að segja hvort ég borði brauð eða vínarbrauð oftar.

 

Áhugamál: Núna um sumarið hefur það verið ljósmyndun því pabbi keypti tótallí twirling myndavél, Canon EOS 350 Digital rebel. Í kjölfarið hef ég stofnað síðu á flickr.com. (www.flickr.com/photos/hrefna_s ef þið vilduð vita það). Önnur áhugamál eru vinir og tónlist lítið hægt að tala um það nema tegund tónlistarinnar sem er mest eins og stendur í um mig dæminu en með vinum er ég yfirleitt annaðhvort ekki að gera neitt, eða í blómavali, góða hirðinum og allskonar matvörubúðum (nei, vinir mínir eru ekki yfir fertugt)..enda er ekki beint hægt að segja að ég sé partídýr...ég er örugglega frekar leiðinleg.( tótallí laughing out loud núna..:lol:)

Skóli: Ég er í MS og líst vel á mjög fínir krakkar...skólastjórinn er samt hundleiðinlegur og sögukennarinn er með jafn svæfandi rödd og Mr. Binns (meðlimir VD fatta þetta og eru ýkt sammála) svo er Þorbjörn efnafræðikennari alltaf jafn hræðilegur og ég alltaf hrædd um að hann öskri á mig 200 desíbela styrk. Annars mjög fínt.

Fjölskylda: Það eru fjórir aðrir meðlimir í fjölskyldunni aðrir en ég og þeir heita mamma, pabbi, Hjörtur og Snorri. Mamma er týpísk mamma, hún er alltaf borða hollt grænmeti (samt ekki neitt óhollt grænmeti til) og reynir að troða því okkur hin í fjölskyldunni, en við borðum bara "familypítsa" með lauk papriku, pepperoni, skinku og sveppum (ég borða samt hvorki lauk né papriku )og staldurs hamborgara. Pabbi er sá sem kaupir þetta...sem er þó ekki nógu gott, undirhakan (undirhökurnar) talar fyrir sig. Hjörtur er verkfræðinörd og finnst gaman í stærðfræði...(hahaha hvílíkur lúði) en látiði ekki plata ykkur, hann er samt að ég hef heyrt (að vísu frá honum sjálfum) að hann sé ofurtöffari á djamminu og gellurnar falli niður við fætur hans þegar hann þylur upp verkfræði formúlur á meðan hann þeytir skífum. Snorri er líka fínn hann á fleiri vini en ég :( og Hjörtur þekkir helminginn af 1984-1987 liðinu á Íslandi og oft er meirihlutinn af þeim inni í herberinu hanns öskrandi, líklega bara svo ég geti ekki sofnað....en já Snorri er fínn..svolítið fleeeppaður kall..vonandi verður hann ekki eins og ég, en hann er kvennabósi on the rise og er fallegasta barnið á heimilinu. Samt er hann með sérþarfir eins og að borða ekki sósu eða neitt óhollt.

Niðurstöður: Ég er ágætis manneskja og get verið bæði ýkt skemmtileg eða hundleiðinleg, ég á frekar skrítna fjölskyldu og vini (*hóst*Sandra*hóst*)..Ég er sjálf skrítin og sumum fynnst það pirrandi, það er bara af því þeir eru of mainstream til að fúnkera.

Hér er bloggið um mig sem er þó bara blogg til þess að dissa aðra


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 22:40:49 / Hrefna

blaaaahh

Ég fékk undarlega löngun til að blogga...ég hef bara ekki hugmynd afhverju :O

Ég bloggaði bara seinast í apríl,  hvílíkt og annað eins boring blogg!

En undan farið hef ég verið að vinna á kaffihúsi sem bara var verið að opna á daginn og veitingahúsi/bar á kvöldin.

Það er bara mjög fínt..ég er samt ömurleg í þessari vinnu, skil ekki af hverju þau reka mig ekki..ég er fríkin léleg!! uss uss uss!

Í dag var samt viðburðarríkur dagur! það skal ég nú segja ykkur!!
Í morgun átti ég að fara í vinnuna klukkan 10 svo ég stillti klukkuna á hálf níu, svo pípti klukkan og ég setti á snooze tvisvar á og svo slökkti ég og ætlaði ég að hvíla mig aðeins lengur..eeen ég sofnaði og mamma kom niður klukkan 10 mínútur í 10 og spurði svo eftir minnilega:,,Hrefna!!..hvenar áttu að mæta í vinnuna?\'\'
-,,klukkan tíu\'\' sagði ég, en þá sagði hún mamma klukkan er tíu mínútur í tíu núna :O"
Þá fór ég á fætur og flýtti mér að hjóla í Árbæinn, en þar var enginn mættur nema hann Siggi frændi og það kom í ljós að ég átti ekki að mæta fyrr en hálf ellefu.

Þannig ég fór í 11-11 að drepa tímann, og þar kom gömul kona og spurði mig hvort ég ynni þarna...en ég vinn ekkert í 11-11 svo ég sagði nei..og þá leit kjééllan á mig stutterma bolinn minn og byrjaði að tauta og gretta sig...en á stuttermabolnum var nú ekkert annað en þessi líka glimrandi hauskúpa :cry:

Eftir vinnu fór ég heim að gera ekki neitt og svo aftur á hinn staðinn klukkan 18 og svo þegar það var liðið þá keypti ég mér ýkt svalt úr á 100kr á tombólu sem blikkar og mér fannst ég gera frekar góð kaup...það var rangt því klukkan virkar ekki :(

--------------------------------------------

En ég hef verið að gera hitt og þetta núna undanfarna mánuði, svo sem að taka myndir og annað slíkt og á 17.júní fór ég nú ekki niðrí bæ...nei aldeilis ekki!! heldur teiknaði ég á vegginn minn alveg dýrindis mynd sem ég ætla að mála á morgun :D..

en allavega farið á kaffihúsið á Hraunbæ 102 :D og síðan skulið þið fara á www.flickr.com/photos/hrefna_s og svo skulið þið benda mér á fínan úrsmið til þess að laga plast úrið mitt...Helvítis rip off! það ætti að stinga þessum krökkum í einhvern kjallara!


grín með krakkana..


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 22:20:23 / Hrefna

Sjónvarpsrýni Hrefnu

Halló!

Bloggið mitt hvarf og ég varð mjög reið, en mér fannst þið eiga það inni hjá mér að fá nýtt blogg svo ég ákvað að endurskrifa það eftir minni.

Það verður lítið gert í páskafríinu nema kannski að læra en ég nenni því ekki strax þannig að ég er ekki búin að vera að gera neitt nema horfa á bíómyndir, taka myndir og vera í tölvunni.

Í dag horfði ég á spænsku sápuóperuna My sweet fat Valentina á stöð 2, það er ýkt asnalegur þáttur, og þó frekar góð skemmtun, auðvitað á þann hátt hvað hann sé asnalegur.

 

 



Hér kemur stutt lýsing á þeim 11 mínútum sem ég sá af My sweet fat Valentina:

 

 



Þegar ég byrjaði að horfa á þetta var brúðkaupsveisla og foreldrar brúðarinnar voru að segja hvað hún átti þetta brúðkaup skilið. Þá kom kona í rauðum kjól inn og sagði að hún væri með skilaboð frá  Valentínu. Þá sagði brúðguminn,, ertu að tala um feitu, feitu, fallegu frænku mina hana Valentínu,’’ þá sagði konan sí…sem þýðir já. ( þá fattaði ég að þátturinn héti Fat Valentina af því að það var feit kona sem hét Valentína)

Eftir þetta atriði kom kona sem var klædd eins og maður og hún kom inn í herbergi sem var fullt af fötum og hún sagði:,,Haa! Hér eru bara karlmannsföt, ekki kjóll, ekki pils eða neitt.’’ Þegar hún var búin að segja þetta kom rödd úr loftinu og sagði henni að hún þyrfti að þykjast vera kall, þá sagði hún :,, Ég verð að þykjast vera kall’’

 

 



Eftir þetta er aftur komið í brúðkaupið og þá kom bróðir brúðarinnar með gengið sitt…þá skipti ég um stöð..En svo skipti ég aftur eftir nokkra stund á stöð 2. Þá var konan í rauða kjólnum komin inn í eitthvað herbergi til að faðma gamlann mann fyrir Valentinu, það var nokkuð weird, svo fór konan og kallinn fór að tala við sjálfann sig…þá hætti ég að horfa á þetta.

 

 



Niðurstaða: Allt í allt er þetta frekar leim þáttur með lélegum leik og asnalegum söguþræði, sem gerir þetta einmitt ágætis skemmtun sem maður getur helgið yfir. Þetta verður  samt þreytt eftir nokkrar mínútur, um það bil 5 mín.

 

 



Einkunn: ** tvær stjörnur fyrir duldan og óætlaðann húmor.

 

 



Verið sæl

 

 



Hrefna “Fat Valentina’’ Sigurðardóttir

 

 



 

 



 

 




» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 22:47:36 / Hrefna

sdfsdfsdf

Hey!

Ég skulda ykkur blogg...það er kominn um það bil mánuður síðan ég staðfesti þetta nú líka leiðinlega blogg, sem 4 hafa þó skoðað á hverjum degi...gaman að því.

Annars er lítið í fréttum, nema núna er ég orðin virkilega skipulögð. Það er eitthvað annað ein nokkrum bloggum síðan, þegar ég skrifaði langt blogg um hvað ég væri óskipulögð en það er liðin tíð kæri vin, það er liðin tíð.

Ég er búin að raða í möppu allskonar blöðum og skila fullt af verkeoooooooooooof leiðinlegt að skrifa...get...ekki....haldið...áfram...

Það er þó annað í fréttum hjá mér annað en hvað ég er óeðlilega osom skipulögð en það er það að ég er orðin háð Conan O' Brien, sem er sýndur á hverju kvöldi klukkan 22:45, sem er eftir 4 mínútur þegar ég skirfa þessi orð, þannig ég verð að fara að drífa í þessu. En allavega, mikið getur hann verið sniðugur, ég fæ ekki nóg. En félagar mínir eru orðnir langþreyttir á því að segja lélega útgáfu að brandara sem hann sagði eða spyrji þá hvort þeir horfðu á Conan í gær það horfir nefninlega enginn á CNBC nema ég hér á landi, en það er verðbréfastöð um daginn.

En vá Conan er byrjaður...ég er farin.

Hér með lýk ég lélegu endurlífgunar bloggi.

Hrefna


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2006 13:22:09 / Hrefna

NI!

Hún María klukkaði mig með einhverju svona dóti.

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina: unglingavinnan 8.bekk, unglingavinnan 9.bekk, unglingavinnan 10.bekk, debenhams í einn dag(starfskynning)

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur: Nappi Dy-nó-mæt!! (Napoleon Dynamite) , Lion King, Harry Potter myndirnar!!, Cat in the hat og miklu fleiri

Fjórir staðir sem ég hef búið á: Arahólum og Urðarstekk 10

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar: the O.C, SCRUBS, Desperate housevifes, CSI: las vegas, miklu meira

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum: Boston, Mallorca, Krít, Vestmannaeyjar.

Fjórar síður sem ég skoða daglega(fyrir utan blogg): allmusic.com, leikjanet.is, google.com, myspace.com

Fernt matarkyns sem ég held upp á: Jólamatur, Wilsons pizza, McDonalds, grillsteik.

Fjórar bækur sem ég les oft: Harry Potter og viskusteinninn, Harry Potter og leyniklefinn, Harry Potter og fanginn frá Azkaban, Harry Potter og eldbikarinn (og hinar H.P bækurnar)

Fjórir staðir sem ég myndi heldur vilja vera á núna: Bandaríkjunum, í skólanum, heima hjá einhverjum sem er vinur minn, í Bíó

Fjórir bloggarar sem ég klukka: veit ekki, Krissa og einhverja í 1-j??


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 22:46:08 / Hrefna

JQ!

Halló!

Ég tók bara eftir því að ég er ekki búin að blogga svo lengi, að ég ákvað að blogga núna fyrir ykkur..ööö

Það er ekki hægt að segja að það hafi mikið drifið á mína daga síðan ég bloggaði seinast, enda er líf mitt ekkert voða atventureous eins og líf Johnny Quest, sem eru bestu hasar og ævintýra þættir í heimi, fyrir utan Tinna. Ég ætla ekki að útskýra hvað Johnny Quest er því ef þið vitið það ekki, eða kunnið ekki themesong-ið í Quest þá ertu leimer.

Okei þú ert ekki leimer.

Hey! ég var að spá er eitthvað rugl í kerfinu hér á blog.central? ég er með 46 heimsækjendur í dag! Það er eitthvað gruggugt við þetta.

Jó! Þið sem skoðið síðuna mína:

peace out yah freakin' bitches

( ég vil taka það fram að ég tala ekki svona í alvörunni, ég var að reyna að vera kúl)

Ég hef engar sögur

Hrefna


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 21:39:27 / Hrefna

et eventyreligt liv, min félagsfræðilærer hader mig!

Hæ!

Ég hef ákveðið að blogga tótallý osom fleppað nýtt blogg.

Ég vil byrja á því að afsaka hvað það er langt síðan ég bloggaði...ástæðan fyrir því er að ég var of upptekin að reyna að vera emo.

Ég er failure í því...ég fékk bara bauga á því að reyna að vera vakandi og emo og allir spurðu mig hvort ég hefði verið kýld í framan af pabba mínum.

Það var ekki gaman né satt, þannig ég hef ákveðið að núna skal ég bara horfa á Happyness (þættina) og borða marglitað nammi í öll mál og syngja barnalög...Sem sagt, ég þarf ekki að breyta neinu...Nema stundum borða ég epli og stundum wilson's pítsu.

Nú vil ég nýta þetta tækifæri og auglýsa eftir einhverjum sem vill fara með mér einhverntímann í ökuskólann, því ég hef áttað mig á nauðsynjum bílsins og ég varð 16 ára þann 6.júlí og það er löngu kominn tími á að ég fari að læra á bíl. Svo ef þið þekkið einhvern bílakennarakall sem heitir Þór eða Öku Þór eða  Oku thor ford...þá er það kúl ef þið gefið mér númerið hans.

En nú eftir að byrjað var að sýna sjónvarpsþættina sweet sixteen, hef ég fengið samviskubit af því að halda ekki upp á afmælið mitt, og ég hef ákveðið að þetta ár, þegar ég verð 17 ára ætla ég að halda eitthvað, sælt er að vera sautján-parteyyhh eða eitthvað álíka, þar sem við getum farið í pakkaleik og stoppdans eða eitthvað...væri það ekki flipper(höfrunga)flipp?...Ég bara spyr.

En nú skal ég gera lista yfir það sem ég ætla að gera á þessu ári..

Listi yfir það sem ég ætla að gera á þessu ári:

  • læra á bíl
  • læra á flugvél
  • fara til útlanda, helst til BNA
  • borða BaNanA...BNA haha-orðagrín
  • fara á marga tónleika
  • verða betri en Hrund enskukennari í ensku
  • fara annað hvort í guinness world records þáttinn eða riplays belive it or not þáttinn, þó þeir hafi örugglega hætt 1990.
  • fá fleiri 15 mínútur af frægð...og FRAMA!!
  • bragða á sushi...það er ef ég fæ frægð og frama því sushi er bara fyrir celeb
  • hitta Friðrik weisabell

takk fyrir mig:)

Hrefna


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.12.2005 18:20:00 / Hrefna

the sigurðsons say: Hello, my austrailian mate!

Halló!

Það hefur vakið athygli mína að maður á aldrei að skrifa blogg þegar manni leiðist, því þá verð bloggin manns voða þunglynd og leiðinleg...þannig blogg má nálgast víð og dreif á internetinuR  Þar á meðal á www.blog.central.is/hrefna_inc og www.hjoss.blogspot.com FEIS!! á the Sigurðsons.

En því miður fyrir ykkur sem nennið að skoða síðuna mína, þá leiðist mér hrikalega núna og ætla ég því að kvelja ykkur með því að reyna að vera hress þegar ég er ekki hress eða "öðrunafniemó" (nei, djók).

Ég held samt að mig langi soldið að vera emó...það mun ekki takast...held ég. Ekki frekar en að verða gelgja, það er mér ekki kleift þó svo að the Sigurðsons haldi öðru fram. Já að verða gelgja, tókst mér ekki, eða þá að ég á bara eftir að komast að þessu skeiði og er ennþá föst í svamp sveinsson skeiðinu og Harrypottererbestíheimi skeiðinu. Það kemur sterklega til greina...Já heimur! Bíðið spennt, Hrefna mun verða gelgja! 

Ég fékk jólagjafir, það var nú aldeilis gaman...hér kemur stuttur listi:

  • bolur
  • bolur
  • peysa
  • dvd (spongebob sqarepants, the movie)
  • dvd (the hitchikers guide to the galaxy)
  • dvd (the Office, christmas special)
  • dvd (mr. and mrs. Smith)
  • cd (in case we die-Architecture in Helskinki)
  • ilmvatn
  • hringur
  • sokkar (jólasveina)

Ef þið viljið senda mér jólakveðju, sendið hana á netfangið: egmunekkilesathetta@lifmitterleim.is

Já þar hafið þið það! Jólagjafir celebsins, sem lætur sig stundum sofna í bíó..eða svo er sagt, hahahahaha...ég er ekki celeb :(

Lítið hefur drifið á daga mína í þessu fríi, þetta er boring, ég er bara búin að sitja heima að horfa á ferska prinsinn og bíómyndirnar sem ég fékk í jólagjafir og borða nammið sem bræður mínir fengu í jólagjafir, já, pretty nite.

Við sjáumst á nýju ári 2006...robo dance! (mæ feivorit)

Bless

Hrefna


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 16:25:08 / Hrefna

jól

Það er orðið langt síðan ég bloggaði. En til allrar hamingju er flestum sama og aðeins 1 annar en ég hefur skoðað síðuna mína í dag..það var léttir.

Það er ekki mikið að frétta af mér, ég veit ekki afhverju ég ákvað að blogga, ég er farin að sjá eftir því.

En nú mun ég slá á léttari strengi. Ég er komin í jólafrí, og búin að vera í jólafríi síðan á fimmtudaginn. Já ég hef svo sannarlega framkvæmt margt m.a. horft á the grinch (all time favorite jólamynd), Lion King (all time favorite barnamynd), Agent cody banks (all time lamest bíómynd), svo er ég líka búin að kaupa jólagjafirnar ykkar og svo bjó ég líka til eina, endilega skoðið hana!

http://pic20.picturetrail.com/VOL1205/4239072/8892223/122284173.jpg

En nóg um það...þetta var leimest blogg ever!


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 20:04:00 / Hrefna

...

Þetta er eitthvað keðjudót... 

Comentaðu nafninu þínu og..

1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

 6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 22:02:07 / Hrefna

MS!

Góða kvöldið/góðann daginn/velkomin á fætur/góða nótt.

Móðir góð, ef þú fær þá flugu í hausinn að lesa þetta blogg, þá skaltu ekki gera það. Bannað! Skamm!

Ég er hér með óskipulagðasti nemandinn í Menntaskólanum við sund.

Dæmi númer 1: Í gær var ég að labba í strætó með Lísu og Þórey, og við mættum Magga Ben sem gleymdi víst að skila Lífsleikni möppunni. Svo fór Maggi og Þórey að prenta eitthvað út. Við Lísa héldum áfram og ég spurði:,, Áttum við að skila lífsleiknimöppu?´´, og Lísa svaraði ,, já í síðustu viku, ég vona að ég fái ekki lægra fyrir að setja ekki ritgerðina í möppuna´´ og ég sagði: já okeyyyy!

Dæmi númer 2: Þegar ég kom heim fór ég á msn að spurja bekkjarfélaga mína hvað dagbækurnar sem við eigum að skrifa í lok hvers tíma áttu að vera um svo ég gæti bullað eitthvað um það á blöðin og skirfaði einhverjar 5-6 dagbækur og setti ritgerðina mína í möppuna...Feis á Lísu...svo klukkan 16:30 skutlaði pabbi mér upp í skóla til að skila möppu.

Dæmi númer 3: Í leikfimi áðan spurði ég Rögnu hvort hún væri búin með glæpafrásögnina sem við áttum að gera, og þá kom í ljós að ég hafði misskilið verkefnið og við áttum að skrifa tvær en ekki eina ritgerð sem var c.a. 250 orð og ég var hálfnuð með söguþráðinn á fyrstu sögunni með c.a.500 orð, sem er ekki kúl.

Dæmi númer 4: Ég vissi ekki að við ættum að skila efnafræðimöppunni, og svo þorði ég ekki að spurja hinn hræðilega Þorbjörn Efnafræðikennara hvort ég mætti skila möppunni seinna.

Dæmi númer 5: Áðan var ég að labba í strætó með Lísu og spurði hana hvenar við ættum að skila dönskumöppunni og hún svaraði: ,, Ég skilaði minni bara þegar ég tók prófið, maður átti að gera það´´ og ég sagði þá já okeyyy

Nú er ég búin að vera allan daginn að læra, að klára tvær möppur: dönsku og efnafræði og skrifandi tvær glæpafrásagnir ein 648 orð og hin 312 orð.

Eins og þið sjáið er ég ekki skipulögð, hef aldrei verið, en mun vonandi verða það einhvern tímann. En ég kláraði þetta allt og það er það sem skiptir máli...er það ekki?

Kveðja Hrefna-óskipulagði duglegi nemandinn


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 22:06:06 / Hrefna

jólin

Þið valdið mér vonbrigðum. Að athugasemd-a ,eins og maður segir á íslensku, ekki þetta langa blogg mitt hér að neðan. Eða er ég kannski bara að skrifa á síðu sem lifir í þeim veruleika að fá engar heimsóknir nema frá eiganda sínum? ha?

Nenni ekki að lesa Mýrina, er að fara í próf á morgun úr henni og ég á eftir að lesa 30 blaðsíður og ég sit hér klukkan 10 að kvöldi skrifandi eitthvað leimer blogg. Það er ekki sniðugt að láta mig lesa þessa bók ég er komin með leið á henni liggur við að albúm fari að toppa þessa bók og hún var bara: hey ég á afmæli og fékk inniskó á bls. 45 og ég missti tönn og á heima á Sauðarkróki á bls. 46, sem er ekki kúl.

Farðu heim til þín Erlendur! Hættu að tala við fólkið um þetta leiðindar mál og fáðu þér hamborgara frá staldrinu. Æji reyndar er þetta alveg fín bók, ég er bara búin að fá tímabundið leið á henni eftir að hafa lesið 146 blaðsíður í einu. Og Albúm má fara í vindáshlíð ef það vill það er ömurleg bók. Það eina sem er kúl við bókina er að konan sem skrifaði bókina var Mínervudóttir. Alveg eins og Mínerva Mcgonagall prófessor í Hogwartsskóla.

Já talandi um fyrrverandi skólann minn (útskrifaðis fyrr) þá styttist í Harry Potter and the Goblet of Fire! sem er tótallý kúl. Það varð samt einhver misskilningur og einhver jólasveinn sagði mér að frumsýningin væri 18.nóv. og svo kom álfur út úr hól og sagði að hún væri 28.nóv. sem er ekki satt. Hún verður hvorki meira né minna en 25.nóv!

Expectó partónum!  

Hrefna


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.11.2005 17:49:57 / Hrefna

krazy glue og leiðindi

Vá hvað ég nenni ekki að blogga...en hey! ég ætla samt að gera það því  I can!...vú hú, tökum móment og klöppum fyrir því! klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp  klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp...ok stopp!

Mér leiðist svo mikið, ég er ekki búin að gera neitt í dag, nema áðan skilaði ég spólu og keypti krazy glue, og svo fékk ég mér ís, jiii ég er orðin gömul kona! og ég sem hélt að ég yrði alltaf gömul kona sem væri með hvítt hár í permanetti og hlustaði alltaf á Hauk Morthens, sem er kúl. Ég er ekki búin að hafa neitt að gera, nema áðan tók ég gamlann taperecorder og söng úr mér líftóruna, já þið megið hlæja að mér, gjörið svo vel, en munið að þegar þið verðið öll gamlar konur og menn að ég sem verð þá aftur orðin 16ára (eða dáin?) að ég mun hlæja að ykkur og súrefniskútunum ykkar, FEIS!

Hey! ég er búin að ná að skrifa alveg nokkrar línur! I can! klapp klapp klapp!

Hey 85' ballið var um daginn, það var nú aldeilis spes og skemmtilegt ball, ég finn ennþá ilminn af ælunni mmmm, já þetta var mega gaman, og ég man að sjálfsögðu allt FEIS nr.2! enda algjör bindindis manneskja og lúði, nörd og asnaleg í þokkabót...sem er kúl, já þetta var allt rosa hresst og mikið um séð og heyrt mómentum, sem ég nenni ekki að segja frá, enda séð og heyrt löngu útbrunnið blað, þó mér finnist lúmskt gaman að lesa það.

Hey! vitið þið hvað? ég er orðin mikilvægur hluti þjóðarinnar, enda tók ég þátt í edduhátíðar kosningum, og hér með hætti ég að segja að spila kvöld mömmu og vinkvenna hennar séu eins snobbuð og edduverðlaunin, enda er ég búin að snobba þau niður...omg ég er aldrei í merkjavöru!

Talandi um þessi spilakvöld, þá hef ég yfirleitt verið voða, rosa, svaka kurteis þegar þau eru hér heima, en um daginn gengu þau of langt og ég var með æsing við vonkonur konungsfjölskildu Danaveldis, þannig var það að ég fór upp í búð að kaupa eitthvað sem mamma gelymdi að kaupa og svo leigði ég spólu sem ég gæti horft á inni í holunni minni, af því ég forðast yfirleitt það að hitta þær. En svo er mál með vöxtum að þegar ég kem inn úr kuldanum og inn í eldhús að mamma segir mér fyrir framan vinkonur sínar að hún gelymdi klökum og ég eigi að fara aftur upp í búð, svo ég verð nú heldur betur pirruð, hækka röddina og mótmæli. Þá segir ein kona (sem á hlut í Epal,suss þarf ég að segja meira) svona eru þessir unglingar ooohohoho. Usssussuss!

Ég þarf að fara að læra á bíl, enda búin að vera 16 ára 5 mánuði og 6 daga, þetta gengur ekki. Allir eru alltaf: hey ég er með góðann ökukennara sem heitir Þór og er ökuþór, og ég er alltaf bara eehhh ok. En ég var  einmitt að pæla í þessu í gær þegar ég var að leigja spóluna sem ég skilaði áðan, það er kona sem ég veit um  sem er sjötug og kann ekki á bíl. Ef ég held þessu áfram á ég örugglega eftir að þurfa að búa í Árnessýslu og labba allt af því ég kann ekki á bíl og ekki heldur á strætókerfið sem verður þá líka til Svíþjóðar og Noregs með svona magic school bus, sem eru geðveikir þættir by the way!

Vó ég er búin að skrifa endalaust blogg! það lengsta lengi...þetta sýnir okkur að: I can! klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp klapp

Takk fyrir mig!

Hrefna


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 21:45:09 / Hrefna

Klukk/Klikk

Já ég held að það sé hvorki meira né minna en kominn tími fyrir blogg...tími fyrir Fönn ( ekki stuðmanna fönn heldur gaman)
Ég er ekki viss um það hvað ég á að skrifa en ég var klukkuð fyrir löngu...ég fattaði ekkert hvað það þýddi og hélt að fólk væri almennt dottið úr æfingu í stafsetningu, ég hélt að þau væru að skirfa Klikk, að ég væri klikk, eeeen sem betur fer ekki, enda er ég mjög mikið á jörðinni.
En ef ég hef skilið þetta klukk rétt á maður að skrifa fimm staðreyndir um sjálfan sig, en ég er svo mikið á eftir að allir eiga bara eftir að vera: ,,like totally ó mæ goood, hún var að skrifa klukkið á heimasíðuna sína á þriðjudaginn 1. nóv...ómægasshhh!
En þannig verður það ekki því það les enginn bloggin mín, nema ég sjálf.
En hér koma staðreyndirnar:

Ég með æði fyrir lava lampanum sem ég stal af bróður mínum, en því miður er það eina birtan í herberginu mínu fyrir utan sjónvarpið af og til.

Ég er með tótallý æði fyrir Harry Potter, en vil hætta því af því allir eru alltaf að lemja mig í skólanum.

Mér finnst paprikur, gulrætur, vanillu ís, tríó trópí og rautt extra tyggjó vont.

Leikfimiskennarinn minn hatar mig, og ég er ekki góð í bekkpressu.

Ég er sjúklega hrædd við trúða og postulíns dúkkur.

Ég held að ég hafi sagt meira en nóg og ég tek ekki þátt í svona framar, og ekki heldur keðjubréfum, eða kappáti. En ég á örugglega eftir að taka þátt í þessu öllu aftur, mér finnst bara gaman að þykjast *hóst* vera félagskúkur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.10.2005 16:38:09 / Hrefna

..

Halló!

Mér leiðist megative mikið þannig að ég ætla að blogga upp einu bloggi...kannski verður það sniðugt en kannski verða þau bara sviðug (sjá gestabók).

Öss Öss Öss...á ég að trúa því að ég sé ennþá Hrefna ruglaða...fuss og svei, ég hélt að þetta myndi allt fara í menntaskólanum...ég sem var að reyna að vera mellóv...það hefur örugglega einhver látið myndum af mér í einhverju nörda-leim-rugl-flippi leka á netið...flipp----endó! haha! En ég veit ekki hvað gerðist.

Jiii minn eini, ég er svo lélegur bloggari, ég nenni þessu ekki.

Ég ætla að hætta að nota þessa broskalla, þeir eru bara fyrir styttrakomna í blogg ferlinum...en ég efast um að ég sé komin það langt, þó svo að síðan mín sé ein sú langlífasta!! haha það segi ég satt. en það er kannski ekkert satt..

Það er erfitt að skrifa um ekkert, en ég get það......frændi minn heitir Ingimundu...ekki  Ingimundur heldur Ingimundu af því afi hans sem heitir Ingi var svo gleyminn.

Æji þetta var sviðugt blogg

Bless

Hrefna


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4