Það munaði litlu að ég hefði ekki skrifað þetta blogg sem ég er
að fara að skrifa, en óttist ei, ég nenni því alveg....eða
ekki....eeeeeen ég ætla samt að láta af því verða.
Nú er ég leti klessa og brunarúst, ég var nefninlega í báta ferð
á Þingvallavatni í allan dag á spítt-gúmmí-báti. Ég vaknaði klukkan
9 í dag og fór síðan upp að borða. Þegar ég var hálfnuð með matinn
komu Krissa frænka og Gísli sonur hennar.
Við fórum í bílinn og svo að Þingvallavatni klukkan 10 og
brunuðum á bátnum um allt vatnið og stoppuðum á einhverjum eyjum og
þannig. síðan fórum við aftur að upphafs stað og þar fórum við að
veiða og Gísli veiddi fisk...og slengdi honum nokkrum sinnum í
mömmu sína...jááá góðir tímar
Svo undarlegt og það má virðast var klukkan 16:00 þegar við
komum heim...sem þýðir að við vorum 4 klukkutíma á vatninu og
6 klukkutíma alls...já og ég fékk borgað fyrir þetta
...ég vona að þetta hafi verið skemmtilegra en á þessari
sumarhátíð því ég ákvað bara í morgun að ég ætlaði frekar að fara á
bátinn. Skemmtilegt þetta skemmtilegt...
Áðan horfði ég á Eidda tröll eða hvað sem hann kallar sig(
gaurinn í kallarnir.is ) ásamt "pródjektinu" sínu í Ísland í dag
áðan...það var einkennilegt...alveg hreint....Ég persónulega hef
aldrei þolað þessa súkkulaði-vax og adlitsmeðferða-gaura með
demants eyrnalokka (en ég vil nú ekki móðga einn né neinn)...það
breyttist ekki við þetta viðtal. Það sem mér fannst mest truflandi
var hve "pródjektið" líktist Indverja...Já við skulum vona að hann
límist ekki einhverntímann við ljósalampann. Það fannst mér einnig
mjög fyndið hvað uuuu...jááá Gillsenegger heitir hann víst,
móðgaðist þegar konan sem tók viðtalið sagði: Þið eruð kallanir.is,
hann leiðrétti hana eins og hann væri sjálfur
leifturmaðurinn....ekki það að leifturmaðurinn sé til
.
Jæja nóg í bili
Hrefna